20. nóvemberÁróra Unnarsdóttir
Jæja, ég er mætt aftur! Það er búið að vera svo mikið að gera hjá okkur undanfarið að ég hef bara skrifað inná síðuna hjá bumbukrílinu okkar og hef alveg látið það vera að skrifa eitthvað hér.
En annars er bara allt ljómandi gott að frétta.
Við erum alveg flutt í nýju íbúðina okkar og erum búin að koma okkur mjög vel fyrir þar. Það virðist nú samt ætla að ganga eitthvað brösulega fyrir okkur að hengja upp myndir og spegla, en það hlítur að gerast á endanum.
Annars er allt annað komið og við erum hæst ánægð í íbúðinni.
Þessa dagana snýst síðan náttúrulega allt um litlu baunina okkar sem er væntanleg í heiminn eftir 13 daga! (þ.e.a.s ef það kemur á settum degi
)
Ég er búin að þvo öll barnafötin og utanaf öllu og ætla að fara að þvo sængurverin núna í þessari viku, þannig að það er allt að verða til.
Ömmurnar eru líka alveg að standa sig. Mamma mín er búin að hekkla skírnarkjól, prjóna kerrupoka og eitt bleikt og eitt blátt sett með húfu, hosum og vettlingum. Síðan er Kolla búin að gera bleikt sett með peysu, húfu og hosum og er að vinna í því bláa, þannig að það eru allir á fullu núna þessa dagana!
En já, kannski ég reyni að koma með einhverjar fleiri fréttir, þ.e. um eitthvað annað...![]()
Eins og kannski flestir vita þá er ég að klára stúdent núna um jólin, og er í heilum 13 einingum í skólanum núna. Ég var svo ótrúlega sniðug að ég átti bara einn skylduáfanga eftir, sem er próflaus! Þannig að ég valdi síðan bara eitthvað próflaust með þeim áfanga þannig að ég fer ekki í nein lokapróf.. Sem hentar svona líka ljómandi vel þar sem ég yrði annars akkúrat að eiga barnið í prófavikunni!
En þar sem ég er í öllu próflausu þá segir það sig náttúrulega sjálft að það þá þeimun meira að gera hjá mér núna í lokin á önninni.
En mér sýnist þetta nú ætla að verða auðveldara en ég hafði reiknað með , þannig að ég er bara hin rólegasta yfir þessu öllu saman. Ég er reyndar að fara í eitt próf 28. nóvember, sem hræðir mig svona pínu þar sem það er heldur stutt í settan dag þá, en það hlítur að sleppa!!
Ég er ennþá á fullu að vinna á Bjargi og það gengur bara mjög vel. Er enn sem komið er ekki orðin neitt þreytt og mér líður ennþá svo vel að mig langar ekkert að fara að hanga heima..=)
Nú bíðum við bara spennt eftir því að fá litla krílið okkar í fangið og þó að við séum strax farin að bíða þá liður tíminn svo hratt að þetta á eftir að verða komið áður en maður veit af.
Þeir sem vilja fylgjast með geta gert það á heimasíðunni... slóðin er http://barnaland.is/barn/63425 Látið mig síðan bara vita ef þið viljið fá leyniorðið.. =)
Það er aldrei að vita nema ég skrifi ekkert aftur hérna fyrr en krílið verði komið, þannig að það er um að gera að fylgjast með þar..
Áróra Unnarsdóttir
| Góðan daginn! Ég er aðeins að reyna að taka mig á á hérna í blogginu. Við Sigþór erum komin með lyklana af íbúðinni okkar í hendurnar, en fáum þó ekki formlega afhent fyrr en á morgun. Við fengum nefnilega að kíkja aðeins inn um daginn og skella þvottavélinni okkar og þurrakaranum inn á bað, og þá létu eigendurnir okkur bara fá lykla af íbúðinni. Í kvöld ætlum við að byrja að mála.. eða allavega gera allt klárt þannig að við getum byrjað að mála annað kvöld. Við kíktum aðeins uppeftir í gær og sáum okkur til mikillar ánægju að við þurfum að lakka alla gluggakarma og allt, þannig að það verður nóg að gera um helgina. En það er nú ekki eins og að við verðum ein í þessu. Það eru allir alveg ólmir í að hjálpa okkur, þannig að það verður bara málningarpartý hjá okkur alla helgina..! Þetta verður ótrúlega gaman og ég eiginlega bara get ekki beðið! Við erum búin að ákveða litina, en erum ekki alveg ákveðin hvort við ættum að hafa einn eða tvo veggi í sama litnum.. Helgin fer síðan að öllum líkindum bara í það að mála og gera allt fínt, og svo stefnum við að því að geta flutt allavega sem mest af dótinu á sunnudaginn. Við ætlum reyndar að kaupa okkur rúm fyrir sunnan, þannig að við flytjum stóra rúmið sem við erum með núna ekki með okkur.. og sofum þá bara á dýnum fystu næturnar. Síðan um helgina, þ.e. 6-7 okt. ætlum við að fara suður og kaupa rúmið og kíkja í IKEA. Það verður örugglega ógeðslega gaman að geta keypt inní sína eigin íbúð! Ég er að verða eins og lítið barn sem hlakkar til jólanna..hehe En já nóg um íbúðina... Kannski ég deili því með ykkur hvernig vikan er búin að vera... Á mánudaginn var vinna, skóli og svo man ég ekkert hvað ég gerði til kl 6. Það var örugglega eitthvað mjög merkilegt.. Síðan náði ég í Sigþór kl 6 og við fórum aðeins heim og klæddum okkur og svona, og fórum svo á Greifann um kvöldið! Fengum okkur bæði pastarétt, sem voru báðir mjööög góðir! Ég er reyndar alveg búin að missa matarlystina sem ég hafði, þar sem barnið er farið að taka allt plássið þarna niðri..hehe þannig að ég gat ekki borðað næstum því jafn mikið og mig langaði! Sessý var að vinna þarna um kvöldið og hún svoleiðis stjanaði við okkur.. hehe Á þriðjudaginn var engin vinna um morguninn hjá mér, þannig að ég mætti bara í skólann kl 11:25. Eftir skóla fór ég síðan bara eitthvað að gera.. Í gær fór ég í vinnuna kl 8 og svo í skólann kl 11:25. Eftir skóla fór ég heim, en var svo ofboðslega þreytt að ég bara steinsofnaði og svaf eiginlega alveg til hálf 5. Fór svo í vinnuna kl 5. Dagurinn svona dröslaðist áfram, og loksins þegar klukkan varð korter í 8 kom Sigþór og sótti mig. Þá fórum við beint á Hlíðarhól og fengum dýrindis kjúklingarétt í matinn. Eftir matinn fórum við aðeins uppí íbúðina okkar og sýndum Bjössa og Kollu íbúðina, því þau höfðu aldrei séð hana. Við mældum það út hvað við þyrftum mikla málningu og svona, og fórum svo í heimsókn til Báru, ömmu hans Sigþórs eftir það. Mangi og Ólöf (frændfólk Sigþórs) var hjá henni líka, og það var nú ekkert verra. Við stoppuðum nú samt ekkert voðalega lengi, og vorum komin heim um hálf 11 leytið. Við vorum þá orðin þreytt og fórum að sofa um 11. Í dag vaknaði ég ekki alveg nógu snemma.. Skutlaði Sigþóri í vinnuna og fór svo sjálf í vinnuna. Eftir vinnu fór ég aðeins heim og fékk mér síðbúinn morgunmat, og fór svo í skólann. Sótti svo Sigþór kl hálf 1 og við fórum í Bakaríið við Brúna og fengum okkur pizzu. Svo fór ég heim og fór að læra í fjarnáminu, og ég held bara svei mér þá að ég sé að verða búin með verkefnið sem ég ætlaði að gera í dag. Ég væri reyndar líklega löngu búin með það ef ég hefði haldið einbeitingunni við það og sleppt því að blogga Þannig að ég ætla að fara að fá mér aðeins að borða og drífa mig síðan á bjarg. Kv. Áróra |
21. septemberÁróra Unnarsdóttir
Ég var búin að íhuga það alvarlega að hætta með þessa síðu, en er að hugsa um að reyna að halda í henni lífinu aðeins lengur allavega.
Ég er nú búin að skipta um bakgrunn og svona, gæti verið að það sé nóg til þess að ég fái áhuga á henni aftur..heheh
En annars er bara allt frábært að frétta.
Ítalíuferðin gekk glimrandi vel og ekkert nema gott að sega um hana. Við Sigþór vorum orðin ótrúlega góð í að rata í Róm þegar við fórum þaðan.. vorum nánast eins og heimafólk bara
(Fyrir utan mittistöskuna, myndavélarnar og götukortin!!) Við vorum semsagt afskaplega svöl þarna úti hehe
Þegar við komum heim tók við bara rok og rigning í höfuðborginni, eins og við var að búast kannski. Brunuðum síðan heim í bæinn okkar góða og höfum ekki farið skref útúr bænum síðan þá. Það var svo gott að komast heim að ég vil bara hvergi annarsstaðar vera núna þessa dagana.
Nú veit ég náttúrulega ekkert hvað ég á að sega hérna, þar sem ég er búin að vera svo dugleg að skrifa á barnalandssíðuna okkar. Kannski óþarfi að vera alltaf að tala um það sama...
Ég er búin að vera að vinna alla morgna og alla seinni parta nema einn í þessari viku, og ég verð nú að viðurkenna það að það er pínu gott að fá helgarfrí!
Það var frí í öllum leiksskólum og skólum (nema giljaskóla) í dag, þannig að ég mætti í vinnuna til að vera Agnesi og Steingerði innan handar ef allt yrði brjálað þarna í morgun, sem það náttúrulega varð! Mætti síðan í skólann kl 10 og fór í jóga. Þetta blessaða jóga er erfiðara en ég hefði getað ímynað mér þegar maður er óléttur. Það er ekki fræðilegur möguleiki á því að gera sumar stellingarnar, en stundum þrjóskast ég við og reyni að gera allt, sem endar auðvitað á því að ég rembist eins og rjúpan við staurinn við það að fylgja hinum eftir, en gengur síðan ekki neitt. Fólkið sem er með mér í jóga heldur örugglega að ég lifi í einhverri afneitun! hehe
Eftir jógað fór ég síðan í uppeldisfræði. Mér til mikillar gleði er Kamilla í þessum tímum, þannig að ég er ekki alveg ein í liði þarna. Tíminn í dag var þó mjög léttur. Horfðum á House og fórum svo snemma heim.. ekki slæmt
Annars eru þessir tímar ótrúlega skemmtilegir. Síðan ég byrjaði erum við búin að föndra grímur, skrifa barnabók og svo bara spjalla og eitthvað.. ekki slæmt að fá einingar fyrir það!
Eftir skólann fór ég aðeins heim, spjallaði við mömmu og tók síðan stelpurnar með mér í smá reddingar. Fórum fyrst í Hjálpræðisherinn og skoðuðum þar. Fundum reyndar ekkert bitastætt þar.. Enda var ferðin meira skoðunnarferð heldur en verlsunnarferð.. Síðan fórum við til Inga í Byggð og ég spjallaði aðeins við hann. Brunuðum síðan í Húsasmiðjuna til Sigþórs og stelpurnar skoðuðu dýrin á meðan ég pældi aðeins í parketi og deildi upplýsingum sem ég hafði fengið hjá Inga með Sigþóri...(og nei, við erum ekki að fara að parketleggja.. við ætlum aðeins að föndra með parket
) Eftir það fórum við í Egil Árnason og komumst að þeirri niðurstöðu að parket þar er ooofboðslega dýrt, þannig að við yfirgáfum þá búð fljótlega.
Fórum þá heim og ég fékk mér smá í svanginn áður en ég fór í vinnuna kl 4.
Eftir vinnu sótti ég Sigþór og hann skrapp í sturtu og svona, svo skutlaði ég honum og Magnúsi í Húsasmiðjuna aftur. Ég er hreinilega ekki frá því að hann Sigþór ætti að fara að íhuga það alvarlega að flytja lögheimilið sitt í Húsasmiðjuna!! hehe Neinei, segi svona. Það var eitthvað iðnaðarmannakvöld eða eitthvað þannig, og hann þurfti að vera með einhverja smá kynningu á málningu. Mjög spennandi ![]()
Ég fór þá heim og fékk mér að borða, horfði á sjónvarpið og spjallaði við mömmu og pabba.
Gerði síðan eins og eitt verkefni í fjarnámi og var að enda við að klára það núna! Maður er svo sniðugur! Núna er ég búin með þetta verkefni og þarf ekki að pæla meira í þessu alla vikuna ![]()
En ég ætla að sega þetta fínt í bili.. Ætla að fara að lesa Blóðberg![]()
11. ágústÁróra Unnarsdóttir
Jæja, ég lofaði bloggi og hér hafðið bloggÞetta sumar er búið að líða ofboðslega hratt!!
Ég er búin að vinna 9-6 alla virka daga og alla laugardaga.. Þar fyrir utan er ég líka búin að vera í 6 einingum í sumarskóla, sem var eiginlega aðeins meiri vinna en ég hélt. Þannig að ég er búin að vera mjög svo upptekin í allt sumar.
Sem dæmi um það ætluðum við Sigþór að vera þvílíkt dugleg að fara í útilegur í sumar, eins og síðasta sumar. En við höfum ekki farið í nema tvær útilegur það sem af er sumrinu, og ég stórefast um að þær verði eitthvað fleiri úr þessu!
Við kíktum einu sinni í Mývatnssveit og fórum í Lónið og í Dimmuborgir og svona, og svo fórum við á Humarhátið á Höfn í Hornafirði. Það var mjög gaman. Við fengum bæði frí á laugardeginum í vinnunni og lögðum af stað á föstudegi strax eftir vinnu. Við keyrðum austur í einum rikk, stoppuðum bara aðeins á Egilsstöðum og pissuðum og héldum svo áfram. Það var mjög gaman að keyra þangað. Algjörlega nýtt umhverfi og svona, miklu skemmtilegra að keyra leið sem maður hefur ekki keyrt áður. Við vorum komin á Höfn um 1 leytið um kvöldið og tjölduðum í snatri og höfðum það bara kósý og fórum svo að sofa. Síðan tók bara við dagskrá helgarinnar og við vorum þarna með Sigríði og Óla mest allann tímann. Við keyrðum síðan heim um 1 leytið á sunnudaginn. Byrjuðum á að stoppa á Djúpavogi til að taka bensín og stoppuðum í síðan lengi á Egilsstöðum. Fórum í sund og fengum okkur að borð a í Söluskálanum og héldum svo áfram heim.
Síðan þá höfum við bara verið að vinna og nýtt sunnudagana í leti og rólegheit. Það er alveg ótrúlegt hvað maður safnar upp mikilli þreytu yfir vikuna.. Það er svo ótrúlega gott að fá svona einn dag sem maður má sofa aðeins lengur...
Um Versló ætluðum við að fara í Borgarfjörð Eystri,en síðan var veðurspáin svo ógeðsleg að við nenntum ekki að fara neitt. Ákváðum að vera bara heima og kíkja á dagskránna í bænum. Við fengum bæði frí á laugadeginum og höfðum það mjög gott saman yfir helgina. Við fórum í bæinn og kíktum á dagskránna á Ráðhústorginu nokkrum sinnum og vorum svo bara eitthvað að gera. Ella frænka og Manni, vinur hennar, komu og gistu hjá okkur, þannig að við vorum bara hér 6; Við Sigþór, Sigríður&Óli og Ella&Manni. Mamma, pabbi og Kolbrá fóru á Höfn á unglingalandsmót og Hrafnkatla var í pössun hjá Jónínu systir mömmu, þannig að við vorum bara ein heima. En helgin heppnaðist mjög vel.. Enduðum helgina á flugeldasýingunni, fórum með Kollu&Bjössa yfir í Vaðlaheiði og horfðum á flugeldasýninguna frá mjög góðu sjónarhorni.
Já, og svona til að minna ykkur á það...þá eru aðeins 9 dagar í að við Sigþór förum út til Rómar! Við verðum að vinna alla næstu viku og ætlum síðan að fá frí á laugadaginn og bruna suður á laugadaginn. Síðan er menningarnótt á laugadagskvöldið og við ætlum að hitta Heiðu og Einar og kíkja kannski á dagskránna í bænum ef það verður eitthvað varið í hana. Svo er bara spurning hvort það verði eitthvað varið í hana, ég var að skoða dagskránna á www.menningarnott.is og mér fannst ekkert áhugavert vera þarna... En við finnum okkur þá bara eitthvað annað að gera. Alltaf gaman að fara í keilu og svona..
Síðan er flugið klukkan 2 á aðfaranótt mánudagsins.. Ég er ekki alveg að gera mér grein fyrir því hvað það er stutt í þetta. Finnst svo stutt síðan við pöntuðum ferðina og vorum að tala um að við yrðum að hætta að tala um þetta því það var svo langt í þetta...hehe En svona líður tíminn hatt. Magnað alveg hreint.
Heyrðu já, eins og flestir kannski vita, þá er lítið kríli á leiðinni..
Ef einhverjum langar að fylgjast með..þááá.... http://barnaland.is/barn/63425/ ..
Ég er miklu duglegri að skrifa á barnalandssíðuna heldur en hér.
En jæja, ég ætla að fara að hundska mér í vinnuna.
Blessbless
8. ágústÁróra Unnarsdóttir
Það er orðið svo langt síðan ég hef bloggað að ég var búin að gleyma notenda- og leyniorðinu inná síðuna!
En ég fer nú að bæta úr þessu.. Má reyndar ekki vera að því í augnablikinu þar sem ég er að fara í vinnuna aftur, en ég fer að koma með helling af fréttum handa forvitnu fólki =)
Þangað til þá...
Áróra
11. júníÁróra Unnarsdóttir
Jæja, núna fer þessi törn að verða búin. Er búin að vinna 9-6 núna alveg síðan á þriðjudaginn seinasta.. og ég get alveg viðurkennt það að það verður gott að vinna bara til 3 á miðvikudaginn! Ég reyndar hélt að dagarnir yrðu lengri og erfiðari, en þetta er allsekki búið að vera svo slæmt.
Var að vinna á laugradaginn 11-3 og svo eftir vinnu ákváðum við Sigþór allt í einu að fara í útilegu og drifum okkur að taka okkur til og fara í búð og allt. Upphaflega ætluðum við að fara bara í sunnudagsrúnt í Mývatnssveit og fara í Jarðböðin til Elvu, En svo var svo fínt veður á laugardaginn að við ákváðum að drífa okkur bara af stað og gista og taka bara allan pakkann..!
Þegar við vorum búin að pakka niður öllum græjum og fara í búð og kaupa kjöt á grillið, á lögðum við í hann. Þegar við vorum síðan komin að Svalbarðseyri föttuðum við að við gleymdum að kaupa einnota grill! Þannig að við máttum bara gjöra svo vel og snúa við og kaupa grill. Allt í lagi með það.. Svo fórum við í Mývatnssveit og tjölduðum og grilluðum og voða gaman.. Skelltum okkur síðan á sjó! Leigðum árabát þarna og sigldum útá Mývatn og það var ekkert smá fallegt þarna! Mjög gott veður og svo var sólin að setjast og þetta var bara mjög fallegt allt saman. Svo þegar við komum til baka og vorum farin uppí "rúm" fattaði ég að ég hafði gleymt sundfötum, handklæði og sjampó&hárnæringu!! Sigþór gleymdi svo líka handklæði! Hehe frekar fyndið þar sem upphaflega ætluðum við bara að fara í lónið..hehe En í bjartsýni okkar ákváðum að við myndum bara kaupa handklæði í búðinni þarna daginn eftir.. En svo var ekki til neitt handklæði þar, þannig að við þurftum að fá lánuð handklæði og ég fékk auðvitað lánaðann sundbol í leiðinni! Það gerir maður náttúrulega bara í neyð!! hehe Við hittum auðvitað Elvu þarna, alltaf jafn gaman að hitta hana! Það var bara ekker að gera hjá henni þannig að hún kom út að spjalla við okkur og allt...hehe
Eftir lónið fórum við og fengum okkur að borða, og löbbuðum síðan Kirkjuhringinn í Dimmuborgum og tókum nokkrar mjög fyndnar og skemmtilegar myndir..=)
Eftir það fórum við svo bara heim...
Um kvöldið fórum við í heimsókn til afa og ömmu, enda langt síðan við höfðum kíkt á þau. Þau voru að gera upp baðherbergið sitt og það var bara tilvalið að kíkja á þau og baðið í leðinni...hehe. Baðherbergið hjá þeim stækkaði örugglega um helming (að mínu mati allavega) við þessa breytingu. Þau voru með bað en tóku það og settu sturtu i´staðin. Mjög flott hjá þeim!
Í dag var síðan vinna frá 9-6 og planið var að heimsækja ömmu Sigþórs í kvöld, en svo þurfti hann að fara á eitthvað kúk&piss námskeið haha (eins og Stebbi mundi kalla það).. Ég reyndar hef ekki hugmynd um hvenær það verður.. aldrei að vita nema við kíkjum á gömlu þegar hann verður búinn.
Við erum svo léleg í að heimsækja þessa for-feður og mæður okkar að það er engu lagi líkt! Þó að það sé alltaf jafn gaman að hitta þau.. Við verðum að taka okkur á í þessu.
Annars er ekki margt í fréttum... Sigríður og Óli komu jú heim á laugardagskvöldið brún og sæt og bara mjög gaman að hitta þau.. og við höfðum aldeilis um nóg að tala í gærkvöldi!
en jæja, það er gæs í matinn, er að hugsa um að fara og smakka þetta..=/
Veriði bless..
2. júníÁróra Unnarsdóttir
Laugardagurinn 26. mai:
Sigþór fór uppí skóla kl hálf 10 og ég var eftir heima, ætlaði að stökkva í sturtu og fá síðan far hjá Bjössa og Kollu, en neinei.. um leið og ég steig útúr sturtunni hringdi síminn og þá voru þau skötuhjú komin fyrir framan húsið og biðu mín!! Ég klæddi mig í snatri en hafði þó vit á því að taka snyrtidótið mitt með mér! Við brunuðum uppí skóla og ég stökk inná klósett og reyndi að laga mig eitthvað til.. Ræðuhöldin byrjuðu síðan á tilsettum tíma og mér þótti alveg deginum ljósara að Hjalti Jón hafði lagt sig mikið fram við það að gera þessa athöfn eins leiðinlega og hægt var!! En þegar þetta var allt yfirstaðið var mydataka og svona, og svo brunuðum við í Essó og fengum okkur að borða, þar sem við vorum að sálast úr hungri. Síðan lá leiðin á Hlíðarhól og gestirnir fóru að tínast inn um svona 1-2 leytið og þetta var bara fínasta veisla. Ég var reyndar orðin svo þreytt þegar fólkið fór , að ég sofnaði og lagði mig í smá stund. En að var ekki langur blundur, því síðan var farið beinustu leið í Sjallann og þar var heljarinnar veisla. Við fengum villisveppasúpu í forrétt, kjúklingabringur í aðalrétt og einhverskonar kökubúðingsdót í eftirrétt. Allt saman mjög gómsætt.. Síðan voru einhver skemmtiatriði og sungið og haft gaman til svona 11. Þá fórum við öll heim að sofa. Vorum alveg búin á því, og langur dagur framundan!!
Á sunnudaginn vöknuðum við einhverntíman, bjuggum til einn geisladisk og tókum okkur til, og lögðum svo í hann. Við vorum komin suður um svona 6-7 leytið og rúntuðum bara eitthvað um og fórum svo í Laugardalshöll um svona rúmlega 7. Það var alveg stappa af fólki þarna og vantaði ekki troðninginn! Við fórum bara beint upp í sætin okkar og vorum bara þar allann tímann. Tónlekarnir voru mjög skemmtilegir.. Að mínu mati voru Uriah Heep miklu betri en Deep Purple, en það eru nú misjafnar skoðanir á því eins og svo mörgu öðru. Ég veit t.d. að hann Eiríkur frændi minn er ekki alveg sammála mér !!
Eftir tónleikana fórum við svo bara beint til Eika og Friðriku þar sem mamma, pabbi og stelpurnar voru, og við fórum eiginlega bara strax að sofa...
Á mánudaginn vöknðum við og fengum okkur að borða, og svo var haldið í Kringluna. Ég verslaði mér eitt stykki buxur og keypti mér að sjálfsögðu McFlurry. Sigþór reyndar gleypti svona helminginn af honum, í orðsins fyllstu merkingu!! þegar ég gat ekki meira...hehe Svo fórum við í Smáralind og þar fékk ég mér einn bol.. og þá vorum við orðin svöng og fórum á Pizza King og fengum okkur mjöög góða pizzu! Kíktum svo í Kolaportið og þar keypti Sigþór sér eitthvað stuð-dót sem ég hef trú á að hann hafi bara keypt vegna þess að það kostaði bara 500 kall en átti að kosta 3900! Síðan kíktum við í heimsókn til Simma og Bryndísar og hittum Einar Karl og Vilhjálm Karl.. náðum í spariskónna hans Sigþórs sem við gleymdum hjá þeim seinsta þegar við fórum suður og brunuðum síðan heim á leið.
Við föttuðum það nefnilega á föstudagskvöldið að spariskórnir hans væru týndir og þurfti hann bara að gjöra svo vel að útskrifast í spariskónum hans pabba síns...
Við komum heim um svona hálf 11 leytið og fórum þá beint í heitapottinn og fórum síðan strax að sofa..
Síðan tók við bara venjulega vinnuvika... Man ekkert hvað ég gerði eftir vinnu á þriðjudaginn, en á miðvikudaginn fór ég í bæinn með Elvu og keypti mér meik og eitthvað dót.. Á fimmtudaginn var ég siðan að vinna til 6 og var ég gjörsamlega búin á því eftir það.. Það var frekar langur vinnudagur og ég var einhvernvegin ekki alveg að höndla hann...
En í gær vann ég til 3, fór þá í bankann og svo í klippingu. Síðan fór ég pínu heim og fór svo aftur í bæinin í reddingar, og svo kl hálf 6 fór ég í plokkun&litun. Kom svo heim og mamma litaði á mér hárið. Pabbi grillaði síðan dýrindis hamborgara í kvöldmatinn, og eftir kvöldmat, eða um svona 9 leytið, fór ég siðan til Jónínu og Gumma að passa Steinunni og Tuma. Síðan kom Sigþór þangað þegar hann kom úr óvissuferðinni með málurunum hehe og Gummi og Jónína komu síðan um 2 leytið og við fórum bara strax heim eiginlega..hehe
Í dag á síðan háöldruð móðir mín afmæli og er orðin hvorki meira né minna en 45 ára!! Það verður einhver veisla hér í kvöld og margir að koma, þannig að það verður bara gaman...
En já segum þetta bara fínt í bili, ætla að fara að finna eitthvað handa gömlu konunni...
21. maiÁróra Unnarsdóttir
Jæja, ég veit ekki hvar ég á að byrja núna.. það er margt og mikið búið að gerast síðan ég bloggaði seinast..
Ég vann bara alla seinustu viku, nema fimmtudaginn því þá var Uppstigninadagur.
En á miðvikudaginn eftir vinnu, fórum ég og Sigþór með litlu stelpurnar í Skagafjörðinn á Skörðugil til vinkvenna þeirra. Á leiðinni heim, þegar við vorum komin uppá svona miðja Öxnadalsheiðina, þá komu einhver þvílík læti og hávaði og ég var viss um að dekkið hefði bara farið af felgunni og að við værum bara að keyra á felgunni.. En svo stoppuðum við og fórum út og kíktum og þá voru öll dekkin í góðu lagi, en viti menn! Púströrið hafði dottið í sundur, eiginlega alveg uppvið vélina, þannig að það hékk bara niður á götuna. Við vissum ekkert hvað við áttum til bragðs að taka, þar sem það var ekki nokkur skapaður hlutur í bílnum sem við gátum notað til að laga þetta... og þar sem hvorki pabbi minn né mamma svöruðu í símann þá hringdum við í Bjössa, tókum reim úr skó sem við fundum í skottinu á bilnum og sigþór skellti sér undir bílinn og reyndi að binda púströrið upp með reiminni.. Það var ekki fyrr en þá sem fólk fór að stoppa og athuga hvor þau gætu hjálpað. Einn var svo elskulegur að hann stoppaði hjá okkur og fór svo aftur, svo kom hann aftur með einhvern vír handa okkur sem við gátum notað. Við keyrðum svo það sem eftir var á svona 50 og það var þvílíkur hávaði í bílnum!! Svo þegar við komum að götunni minni þurftum við að bakka yfir hraðahindrunina því hún er svo há... hehehe Þetta var allt saman mjög fyndið og ég hló mikið af þessu. Hélt ég mundi pissa á mig úr hlátri þegar við sáum að púströrið var dottið!! Við stoppuðum uppá heiðinni kl svona hálf 10, og við vorum komin heim um 11 leitið, þannig að þetta tók sinn tíma..hehe
Við Sigþór sváfum svo náttúrulega eins mikið og við gátum á fimmtudaginn og svo ætluðum við að fara á Hlíðarhól og heimsækja Kollu og Bjössa, en þá hittum við þau á bílaplaninu og þá voru þau að fara í Vín, þannig að við fórum bara með þeim og fengum okkur köku og svona. Síðan fórum við með þeim á Hlíðarhól og borðuðum þar og spjölluðum aðeins við þau.
Um kvöldið fórum við siðan í bíó á The Reaping. Eftir myndina stoppuðum við í klippistofunni þar sem Inga var í klippingu og Kolla var að passa litlu stelpuna á meðan. Svo fórum við bara heim og fórum að sofa.
Á föstudaginn var vinna bara og svo eftir vinnu fór ég í afmælisgjafaleiðangur fyrir Elvu afmæli. Náði svo í Sigþór kl 6 og við fengum okkur að borða og eitthvað. Síðan um kvöldið fórum við á Hlíðarhól og spiluðum Meistarann við Kollu og Bjössa.. og átum súkkulaðirúsínur og svona.. Það var bara mjög gaman!
Á laugardaginn svaf ég eins mikið og ég gat, fór svo í sturtu og svona og fór í bæinn og lagði lokahönd á afmælisgjöfina og keypti mér laugardagsnammið og svona. Síðan var Sigþór búinn að vinna kl 4 og þá fórum við bara eitthvað að gera..Fórum eitthvað í bæinn og tókum okkur til fyrir afmælið hjá Elvu. Svo lögðum við af stað á Ytri-Vík um 6 leitið. Það var mjög gaman há Elvu.. Fengum ljúfengt læri og snakk og það var bara mjög gaman. Auðvitað tók maður fullt af myndum, en ég bara hef ekki þolinmæði í að reyna að setja þær inná síðuna mína hérna, því það virkar ekki neitt hérna... þannig að ég ætla bara að setja fullt af myndum inná myndasíðuna mína þegar ég verð búin að finna mér einhverja..=)
Á sunnudaginn sváfum við til að verða hálf 2, tókum okkur nægann tíma til að koma okkur á fætur, og skruppum svo í golf. Það var reyndar ekkert jafn gott veður og við héldum, þannig að við vorum ekki lengi í þetta skiptið. Það var svo hvasst og leiðinlegt að við nenntum þessu ekki lengi. Eftir golfið fórum við heim og horfðum á friends og eitthvað. Svo fengum við að borða og í eftirrétt var eplakaka og ís.. nammi namm =P það var ekkert smá gott..!
Í dag var síðan bara vinna frá 9-3 í úr&skart, fór svo og þreif bílinn hans Sigþórs, því hann var svo ógeðslega skítugur!! Síðan fór ég að vinna aftur kl 4-6 á bjargi. Eftir vinnu fór ég í Húsasmiðjuna og náði í Sigþór. Við fórum svo á Hlíðarhól og borðuðum hakk og spagettí og svo komum við heim, en Sigþór stoppaði stutt og fór eiginlega strax úr með Stebba og Steina í golf. Ég ákvað bara að vera löt og nennti ekki með. Langaði frekar að sitja hér í leti og blogga og horfa á sjónvarpið.
Á morgun er svo bara vinna til 3 og ég vona heitt og innilega að það verði gott veður þannig að ég geti skroppið í sund eftir vinnu..
Á miðvikudaginn og fimmtudaginn er ég síðan að vinna á bjargi eftir vinnuna í úr&skart,og eftir fimmtudaginn verð ég hætt á bjargi. Það er svolítið skrýtin tilfinning að vita að kannski fer ég aldrei að vinna þarna aftur.. Vá hvað ég á eftir að sakna sumra krakkanna þarna! Maður er farin að þekkja þau svo vel sum...:)
Síðan um helgina verður nóg að gera!!
Á laugardaginn er útskriftin hjá Sigþóri kl 10 um morguninn, og svo verður eitthvað kaffi hjá honum og svo er veisla hjá Höllu líka og ég ætla nú að reyna að kíkja til hennar :) Síðan er útskrifarveislan í Sjallanum um kvöldið og það verður örugglega mjög gaman. Kolla, Bjössi, mamma og pabbi koma öll með okkur þannig að það verður stuð =)
Á Sunnudaginn vöknum við vonandi ekki mjög seint, og brunum beinustu leið suður á bóginn. Við erum nefnilega að fara á tónleikana með Deep Purple og Uriah Heep. Mér er farið að hlakka ekkert smá til...get ekki beðið eftir að vera komin suður og komin á tónleikana..!! Get ekki sagt að mér hlakki til að keyra suður.. =/ En síðan er frídagur á mánudeginum eftir, þannig að við notum mánudaginn vonandi í búðarrölt .. ég verð allavega að fá mér McFlurry! hehe
Mamma og pabbi eru lika að fara suður um helgina, því Vilhjálmur og Þorvaldur, frændur mínir, eru að fermast á sunnudaginn og þau ætla að fara í veisluna. Þannig að við verðum í samfloti, sem er ágætt =)
Svo er bara spurning um að fara að redda sér gistingu og svona... Það er alltaf jafn gaman
En jæja, þetta blogg er aðeins komið úr böndunum...
Bless bless =)
14. maiÁróra Unnarsdóttir
Þessi dagur er búinn að vera alveg með eindæmum fljótur að líða..!!
Ég vaknaði eiturhress klukkan 8 í morgun og fór í sturtu og klæddi mig, borðaði morgunmat og tók svo strætó niður í bæ.
Fyrsti dagurinn í vinnunni var bara mjög fínn. Það var mjög rólegt og lítið að gera, en samt var mjög fínt. Ég var bara í einhverjum tilfallandi verkefnum og svona... Fínt að byrja svoleiðis. Í hádeginu fór ég á Bautann og fékk mér súpu og brauð sem var mjög gott.
Síðan kl 3 var ég búin og mamma kom og sótti mig, ég fór heim og borðaði smá og spjallaði við mömmu og pabba, og fór svo í vinnuna á Bjargi kl 4. Það var mjög lítið að gera þar lika, en samt alveg nóg. Síðan kom Aldís kl 5 og það munaði öllu. Það er ekki beint skemmtilegast að vera ein þarna.
En svo allt í einu var klukkan orðin 6 og Sigþór kom og sótti mig hálf 7. Við fórum beint á Ak-inn og fengum okkur mjög góðann kvöldverð, hollt og gott...hehe Síðan fórum við heim og klæddum okkur aðeins betur og Stebbi, mágur Sigþórs, kom síðan og sótti okkur og við fórum á Þverá í golf. Þeir buðu mér með og ég ákvað bara að slá til og prófa þetta.. Ég hef aldrei prófað alvöru golf áður. En þetta var bara mjög gaman og kom mér eiginlega á óvart. Við kláruðum reyndar ekki allar 9 brautirnar.. Gerðum bara 6 af þeim, en það var nú samt gaman. Það var bara orðið svo kalt að við, eða eiginlega ég, varð að fara heim. Er ennþá með þetta ógeðslega kvef og hálsbólgu. Ég hélt að tærnar ætluðu hreinlega af mér úr kulda.. En svo komum við heim og ég setti heitt vatn í fótanuddtækið mitt og hlammaði mér fyrir framan sjónvarpið og sit núna með fæturna í bubblandi fótabaði að horfa á friends og að blogga! Hef það ekkert smá gott...![]()
Annars er þetta mjög svo merkilegur dagur í dag...
Í fyrsta lagi á hún amma mín afmæli í dag. Hún er náttúrlega alveg korn ung konan, og í hundaárum er hún ekki nema 19 ára ![]()
Í öðru lagi á hann Óli okkar afmæli í dag... ég hef nú ekki hugmynd um hversu gamall hann er orðinn og ég get ekki sagt að mér langi eitthvað sérstaklega að vita það..hehe
Og í þriðja og síðasta, en ekki sísta lagi, er ég orðin 20 ára og eins mánaða í dag! Til hamingju ég..![]()
Annars er ekki margt að frétta... Bara vinna vinna vinna núna og svo kemur helgin og þá er afmælispartý hjá Elvu á Ytri-Vík ![]()
Svo heldur maður áfram að vinna, og helgina þar á eftir er útskriftarveislan í Sjallanum, og þar sem það er engin veisla um jólin, þá tek ég þátt í þessari veislu núna. Á sunnudaginn ætlum við Sigþór svo að skella okkur í höfuðborgina og fara á tónleikana með Deep Purple og Uriah Heep. Síðan er frí á mánudaginn þannig að ég býst við að við eyðum deginum bara í eitthvað hangs í búðum og eitthvað..
Síðan bara veit ég ekki meira um framtíðina.. Vildi reyndar að ég gæti spáð lengra fra í tímann.. en svona er þetta...hehe
Eins og þið sjáið á niðurtalningunni hér til hliðar eru aðeins 98 dagar í það að við Sigþór förum til Rómar og ég bara hreinlega get ekki beðið. Það var einmitt mjög gaman í dag, við Bjarni töluðum varla um annað en Ítalíu og utanlandsferðir og svona, og núna er ég alveg með þetta á heilanum!! Við ætlum sko að reyna að finna okkur annann stað á Ítalíu til að vera í í svona viku, og enn sem komið er höfum við ekki fundið neitt spennandi. Endilega, ef einhver veit um einhverja flottan og skemmtilegan strandarbæ á Ítalíu, þá láta mig vita. Það væri alveg magnað að fá smá "hint".
En jæja, ég nenni ekki að hafaþetta lengra í bili.. ætla að halda áfram að horfa á Friends og hafa það gott..:)
Já, og ég verð bara að vinna til 3 á morgun, ef einhverjum langar að leika við mig eftir það..hehe
Lag dagsins:
Allir friendsaðdáendur ættu að kannast við þetta lag úr þættinum þar sem Monica og Chandler eru að fara í brúðkaupsferðina sína... Ég gæti án gríns grátið úr hlátri þegar hann syngur þetta...!
Beach boys- Kokomo
Bermuda, bahama come on pretty mama
Key largo, montego baby why dont we go
Jamaica
Off the florida keys
Theres a place called kokomo
Thats where you wanna go to get away from it all
Bodies in the sand
Tropical drink melting in your hand
Well be falling in love
To the rhythm of a steel drum band
Down in kokomo
Aruba, jamaica ooo I wanna take you
To bermuda, bahama come on pretty mama
Key largo, montego baby why dont we go
Ooo I wanna take you down to kokomo
Well get there fast
And then well take it slow
Thats where we wanna go
Way down to kokomo
To martinique, that monserrat mystique
Well put out to sea
And well perfect our chemistry
By and by well defy a little bit of gravity
Afternoon delight
Cocktails and moonlit nights
That dreamy look in your eye
Give me a tropical contact high
Way down in kokomo
Aruba, jamaica ooo I wanna take you
To bermuda, bahama come on pretty mama
Key largo, montego baby why dont we go
Ooo I wanna take you down to kokomo
Well get there fast
And then well take it slow
Thats where we wanna go
Way down to kokomo
Port au prince I wanna catch a glimpse
Everybody knows
A little place like kokomo
Now if you wanna go
And get away from it all
Go down to kokomo
Aruba, jamaica ooo I wanna take you
To bermuda, bahama come on pretty mama
Key largo, montego baby why dont we go
Ooo I wanna take you down to kokomo
Well get there fast
And then well take it slow
Thats where we wanna go
Way down to kokomo
Aruba, jamaica ooo I wanna take you
To bermuda, bahama come on pretty mama
Key largo, montego baby why dont we go
Ooo I wanna take you down to kokomo
Oj bara. ógeðispest og vesenÁróra Unnarsdóttir
Frábært... ég vaknaði með svona líka ljómandi skemmtilega pest!! Er komin með þvílíka hálsbólgu og kvef og fæ svona hita og kuldaköst til skiptis..Svo er vinna á eftir, og ég er að pæla hversu gáfulegt það sé að fara í vinnuna. Ætla nú samt að láta mig hafa það. Þetta er orðin svo lítil vinna þannig að það er bara orðið asnalegt að hringja sig veika...hehe
Heyrðu já, talandi um vinnu. Ég er komin með vinnu í sumar. Fékk vinnu í JB Úr og skart (sem er á móti Bautanum), hjá honum Bjarna frænda mínum. Ég held að það verði bara mjög fínt að vinna þar og mér er eiginlega farið að hlakka til að byrja. Ég á að byrja 14. mai, þannig að ég fæ smá "sumar" - frí á milli prófsins og vinnunnar..
Sé alveg fram á að ég fái ógeð af Subway hehe en það verður bara að hafa það. =)
Já og svo er próf á morgun og ég er ekki búin að opna bók! Ég er ekki að koma neinu í verk á meðan ég er svona slöpp. Langar mest að horfa bara á friends eða eitthavð og hafa það gott. En það er samt svo erfitt að liggja svona í leti þegar það er próf á morgun..
Var reyndar að sjá að prófið er ekki fyrr en kl 2, þannig að ég hef einhvern tíma á morgun..þannig að ef ég verð skárri á morgun ætla ég að nýta morgundaginn bara í botn :)
En jæja, ég ætla að fara að reyna að gera eitthvað af viti..
Blessbless
(já og ég bloggaði líka í gær.. )